Um Pilates
Pilates er alhliða æfingakerfi sem samanstendur af yfir 500 æfingum, sem reyna á hug og líkama. Æfingarnar eru góð blanda af styrktar-og teygjuæfingum sem bæta líkamsstöðu, draga úr álagi og byggja upp langa vöðva án þess að auka vöðvamassa um of. Pilates æfingarnar reyna samtímis á alla vöðvahópa líkamans með mjúkum, samfelldum hreyfingum þar sem aðaláhersan er lögð á að styrkja hið svokallaða “Powerhouse”(kvið-, bak-, rassvöðvar, mjaðmir og læri.)
Áherslan er á gæði hverrar hreyfingar fremur en fjölda. Æfingarnar er hægt að framkvæma á dýnu eða á þar til gerðum tækjum, sem Joseph Pilates hannaði á sínum tíma. Sú framsýni og náðargáfa sem Joseph Pilates bjó yfir má glöggt sjá í tækjunum sem enn þann dag í dag eru smíðuð eftir upprunalegu hönnuninni. Hvert tæki hefur sitt nafn og má þar nefna: Reformer, Cadillac, Wunda Chair, Ladder Barrel, Small barrel, Wall Unit o.s.frv.
Í boði eru einkatímar, dúetttímar og lokaðir hóptímar.
Hverjir eru kostir Pilates-æfinganna?
- Eykur styrk, sveigjanleika og jafnvægi.
- Byggir upp langa og fallega vöðva án þess að auka vöðvamassa um of.
- Dregur úr stressi, losar um spennu og eykur orkuna með djúpum teygjum.
- Bætir líkamsstöðuna.
- Hryggurinn verður sterkari og sveigjanlegri.
- Eykur líkamsmeðvitund.
Algengar spurningar
Þarf ég að vera í góðu formi til þess að geta byrjað að stunda Pilates?
Í Pilatesi er hægt að finna eitthvað fyrir alla – í hvaða formi sem maður er í. Æfingarnar skiptast í nokkur stig. Beginner-Intermediate-Advanced og Super Advanced. Allar æfingarnar er hægt að sníða að þörfum hvers og eins.
Getur Pilates hjálpað til, í baráttunni við bakvandamál?
Sú áhersla sem Pilates leggur á, á að styrkja kviðvöðva, auka liðleika og bæta líkamsstöðu er gott vopn í baráttunni við bakvandamál. Að því sögðu þá getur það oft reynst erfitt að tileinka sér grundvallaratriði kerfisins í hóptímum, sérstaklega fyrir þá einstaklinga sem glíma líkamleg vandamál, svo sem bakvandamál, sem hlúa þarf vel að. Mælt er með að allir sem einhverja sögu hafa af bakvandamálum, sér í lagi ef um viðvarandi vandamál er að ræða, byrji í einkatímum áður en farið er í hóptíma.
Geta allir stundað Pilates?
Allir geta stundað æfingarnar, ungir sem aldnir, íþrótta- eða kyrrsetufólk. Hægt er að aðlaga, breyta og sérsníða æfingarnar eftir þörfum hvers og eins.
Hversu oft er mælt með að stunda Pilates?
Best er að stunda æfingarnar reglulega eða 2-4 sinnum í viku, hvort sem um er að ræða hóptíma eða einkatíma.
Heilræði
- Best er að stunda Pilates á fastandi maga.
- Láta kennara vita ef meiðsl eða veikindi eru til staðar. Einnig ef þú ert barnshafandi.
- Vinsamlegast verið stundvís.
- Nauðsynlegt er að afboða tíma að lágmarki sólarhring áður. Viðskiptavinur greiðir fyrir tíma sem ekki er afboðaður.
Tímar og verðskrá
Einkatímar:
- Í Einkatímum er notast við sérhönnuð Pilates æfingatæki í bland við gólfæfingar.
Dúetttímar:
- Í Dúetttímum eru tveir einstaklingar í senn og er notast við sérhönnuð Pilates æfingatæki í bland við gólfæfingar.
Hóptímar:
- Í hóptímum er eingöngu um að ræða gólfæfingar. Hámarksfjöldi í hverjum hópi eru 8 einstaklingar.
- Í bæði einka- og hóptímum er byggt á sömu grundvallaratriðum Pilateskerfisins.
- Flestir geta stundað Pilates á hvorn vegin sem er en í sumum tilfellum geta einkatímar hentað betur en hóptímar.
Einkatímar:
Stakur einkatími 12.000 kr.
10 einkatímar 110.000 kr.
Dúetttímar:
Stakur dúetttími 13.000 kr.
10 dúetttímar 120.000 kr.
Hóptímar:
2 tímar í viku í 6-8 vikur
6-8 vikna lokuð námskeið 30.000-40.000 kr.
Hafa samband
Senda fyrirspurn
Allar fyrirspurnir um tímapantanir og hópnámskeið ofl.
Upplýsingar
- , Skipholti 23, Reykjavík 105, Ísland
- = 481106-0520
- @ mulberry@mulberry.is